07 - Að vetri
[00:00.23] Vargsgól, vetrarsól,
[00:27.65] Vesturland í kringum jól.
[00:30.40] Kolsvart, hjarnið hart,
[00:32.79] Himinhvolfið lýsir okkur stjörnubjart.
[00:35.45] Köld lönd, klakabönd,
[00:38.10] Klífur fjallið loppin hönd.
[00:40.49] Snöggt hlær snarpur blær.
[00:42.88] Það snjóar,
[00:43.95] það snjóar,
[00:45.27] það snjóar.
[01:10.69] Við hnjúk, vaðmálsdúk
[01:13.18] Vefur að sér, dulan mjúk,
[01:15.57] Hlýtt skinn, hlífir kinn.
[01:18.23] Hamast við að komast yfir fjallgarðinn.
[01:20.62] Átak, bogið bak,
[01:23.28] Býr sig undir vopnaskak.
[01:25.93] Snöggt hlær snarpur blær.
[01:28.32] Það snjóar,
[01:29.65] það snjóar,
[01:30.71] það snjóar.
[02:16.58] Gengur yfir gamalt hraun.
[02:19.07] Gista skúta þar á laun,
[02:21.56] þeirra mikil þrek- er raun,
[02:24.06] útilegumann.
[02:26.51] Horfa eftir henni burt,
[02:29.17] Héla frystir visna jurt.
[02:31.83] Eftir henni aldrei spurt.
[02:33.95] Það snjóar,
[02:35.24] það snjóar.
[03:48.77] Gömul kona, grá og hokin,
[03:53.66] Gengur ein í kafaldsbyl.
[03:58.71] Hárið sýlt og hettan fokin,
[04:03.76] Hún kom niður Stekkjargil.
[04:09.25] Gengur sér til gagns og hita
[04:14.13] Gamlir fætur virðast strita.
[04:19.18] Ferðir hennar fæstir vita.
[04:44.78] Hennar siður, Friggjarfriður,
[04:50.19] Fótaskriður rennir niður.
[04:54.97] Brakar viður, stafur styður.
[05:00.02] Stíginn ryður, gæfusmiður.
[05:05.06] Þórunn biður Lofn um lið.
