Ódýr
[00:40.21] Árin renna frá þér eins og brauðmylsnum er hent í ruslatunnu.
[00:48.20] Þau safnast saman á haugum brostinna drauma.
[00:56.21] Þú lítur til baka og hugsar:
[00:58.94] Afhverju seldi ég mig –
[01:10.46] ekki fyrir meira?
[01:28.23] Næturnar verða ekki mikið fleiri eftir þetta.
[01:36.21] Ævi þín er útbrunninn stubbur í hringiðandi öskubakka.
[01:44.20] Þú lítur til baka og hugsar:
[01:47.21] Afhverju seldi ég mig –
[01:58.73] Öskunni er stráð yfir kistuna og um leið man enginn hver þú varst.
[02:05.28] Ekkert fyrirfinnst jafn ómerkilegt og ævin sem var við að ljúka.
[02:15.28] Þú stóðst ekki fastar á þínu en svo
[02:19.27] að enginn kærir sig um minningu þína.
[02:24.04] Við tekur hyldýpi svartnættis og eilíf eymd í botnlausri algleymsku.
[03:03.76] Ég fel mig undir laki
[03:08.06] sem kuldinn hefur þakið.
[03:12.27] Nóttin starir þögul
[03:16.28] hún segir lygasögur.
[03:20.30] Tómið svífur að mér
[03:24.05] berleggjaður berst ég.
[03:28.31] Banasæng ég bý mér.
[03:32.29] Banasæng ég bý mér.
[03:40.05] Árin runnu frá þér eins og brauðmylsnum var stráð í ruslatunnu.
[03:48.30] Þau söfnuðust saman á haugum brostinna drauma.
[03:56.04] Hversu oft var það sem þú leist til baka og hugsaðir:
[04:00.03] Afhverju seldi ég mig –
[04:10.30] ekki fyrir meira?
